Referințele noastre
Ljósið
Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt.Vefsíða: https://ljosid.is
Sănătate / Asistență socială / Farmaceutică
Manna ehf.
ORG er með verslun í Kringlunni og einnig erum við með verslunina HÚM á Laugavegi 46. Við leggjum áherslu á að bjóða vörur sem framleiddar hafa verið af virðingu við náttúru og fólk - þar sem sjálfbærni og siðferðisleg sjónarmið eru höfð að leiðarljósi.Okkur er annt um lífið og við trúum að það skipti máli hvaða efni eru í vörunum sem við notum og hvernig er staðið að framleiðslu þeirra. Þess vegna vöndum við valið og viljum sjá að vörurnar skilji gott eftir sig - bæði fyrir þá sem klæðast þeim og fyrir þá sem framleiða þær.
- gerumgott -
Vefsíður: https://orgreykjavik.is https://humreykjavik.is
En-gros / Retail
Plast - miðar og tæki ehf
PMT býður uppá allt til merkinga og pökkunar. PMT framleiðir og selur allar gerðir límmiða, límbanda, stimpla, stimpilpenna og plastpoka af ýmsum stærðum og gerðum. Jafnframt er PMT með umboð fyrir heimsþekkt tæki til pökkunar, vigtunar og matvælaframleiðslu. Þetta eru tæki sem henta fyrir kjötvinnslur, fiskvinnslur, matvæla- og sælgætisiðnað, kjörbúðir, bakarí, stórmarkaði og fleiri greinar. En-gros / RetailReykjavík Asian
Reykjavík Asian er metnaðarfullt fyrirtæki sem framleiðir ferskt sushi og tilbúna rétti með asísku ívafi. Vörurnar okkar eru fáanlegar í fjölda verslana um land allt og liggur metnaður okkar í að bjóða faglega og persónulega þjónustu.Vefsíða: https://reykjavikasian.is
Alimentație / Ospitalitate / Turism